Á sveitarstjórnarfundi í gær, fimmtudaginn 14. júní 2012, fóru fram oddvitaskipti. Guðlaug Svansdóttir sem verið hefur oddviti frá sveitarstjórnarkosningum árið 2010 lét af embætti og við því tók Haukur Kristjánsson.

Tímamótafundur

Á sama tíma og skipti urðu á urðu í embætti oddvita, tók Guðlaug sæti í byggðaráði í stað Hauks. Við þá breytingu varð Byggðaráð Rangárþings eystra eingöngu skipað konum. Í Byggðaráði sitja þær (f.v.) Kristín Þórðardóttir, Guðlaug Svansdóttir og Lilja Einarsdóttir.