Verðlaunaafhending í fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna fór fram laugardaginn 10. mars sl. á Hótel Natura í Reykjavík. Kjötiðnaðarmenn frá SS og Reykjagarði sópuðu til sín verðlaunum og var það Oddur Árnason hjá SS sem að hreppti titilinn Kjötmeistari Íslands 2018. Oddur sigraði með 256 stigum en keppnisfyrirkomulagið er þannig að allar vörur byrja með fullt hús stiga eða 50 stig. Dómarar leita síðan að öllum hugsanlegum göllum sem fækka þá stigum. Það var Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem veitti verðlaunin.


Mynd: Björk Guðbrandsdóttir, tekið af síðunni Veitingageirinn.is

Kjötiðnaðarmenn Sláturfélags Suðurlands og Reykjagarðs sigruðu í eftirtöldum flokkum:


Athyglisverðasta nýjung keppninnar

Oddur Árnason - Sveitakonfekt


Besta varan unnin úr nautakjöti

Oddur Árnason – Landnámsnaut/reykgrafið


Lambaorðan

Oddur Árnason – Tindfjallahangikjet


Besta varan unnin úr alifuglakjöti

Björgvin Bjarnason – Kjúklinga ostapylsa


Besta varan unnin úr hrossa- eða folaldakjöti

Jónas Pálmar Björnsson – Grafið lakkrísfolald


Besta varan í flokknum soðnar pylsur

Björgvin Bjarnason – Kjúklingaostapylsa


Besta varan í flokknum kæfur og paté

Björgvin Bjarnason – Kjúklingapaté


Besta skinkan 2018

Sláturfélag Suðurlands - Hunangsskinka   

Á myndinni eru f.v. Jónas Pálmar Björnsson, Benedikt Benediktsson, Oddur Árnason, Bjarki Freyr Sigurjónsson, Björgvin Bjarnason og Steinar Þórarinsson