Vélsmiðjan Magni á Hvolsvelli vinnur nú að gerð nýrra brúa fyrir Þórsmörk. Sveitarfélagið fékk s.l. vor úthlutað styrk að upphæð 15 milljónir í uppbyggingu og verndaraðgerðir í Þórsmörk. Um var að ræða verkefni sem eru talin brýn vegna verndunar eða öryggissjónarmiða og þola ekki bið. Það var Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið sem úthlutaði þessum styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Það voru 88 verkefni sem hlutu slíkan styrk. Styrkurinn verður m.a. nýttur til að setja upp þrjár göngu- og hjólabrýr í vor. Lengsta brúin verður um 30 metrar og hinar tvær um 20 metrar, brýrnar eru núna í vinnslu hjá Magna. Verkefnið er unnið í samvinnu með Skógrækt ríkisins og hefur Hreinn Óskarson skógarvörður á Suðurlandi haldið utan um verkefnið. 
Vélsmiðjan Magni hefur starfað lengi á Hvolsvelli og þjónustað vel landbúnaðinn á svæðinu, auk þess þjónusta þeir líka Sláturfélag Suðurlands á Hvolsvelli og Reykjagarð á Hellu. 
Á myndinni er Ísólfur Gylfi sveitarstjóri, Hreinn Óskarsson Skógræktinni, Þorsteinn Valsson og Kristján Kristjánsson hjá vélsmiðjunni Magna.