Sveitarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum nýja skólastefnu fyrir sveitarfélagið. Skólastefnan tekur til áranna 2015- 2020 og nær yfir grunn- og leikskóla sveitarfélagsins. 

Skólastefnan var unnin af fræðslunefnd Rangárþings eystra og ráðgjafa frá Capacent og var hún unnin á grundvelli hugmynda sem fram komu á skólaþingi sem haldið var á vegum fræðslunefndarinnar. Með þessu hefur skólastefna og framtíðarsýn Rangárþings eystra í skólamálum verið lögð. Sveitarstjórn þakkar fyrir þá vinnu sem lögð hefur verið í stefnuna. Einnig hvetur sveitarstjórn fræðslunefnd til að láta prenta skólastefnuna og halda íbúafund til kynningar á henni.

Skólastefna Rangárþings eystra 2015-2020