NÁLA margmiðlunarsýning í Sögusetrinu á Hvolsvelli
Þetta er margmiðlunarsýning fyrir börn (á öllum aldri) og boðsgestir eru börn af yngsta stigi Hvolsskóla og næst- elsta árgangi leikskólans Arkar. 
Opnun: Þriðjudaginn 5. maí kl. 13:00.  

Sýningin Nála er byggð á samnefndri barnabók eftir Evu Þengilsdóttur. Bókin, sem kom út hjá Sölku í október 2014, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Sagan er óður til íslensks menningararfs og um leið ævintýri um valið milli góðs og ills, stríðs og friðar. Innblástur sækir höfundur í hið 300 ára gamla Riddarateppi sem varðveitt er á Þjóðminjasafninu.

ALLIR VELKOMNIR

Refilstofan verður opin á opnunardegi sýningarinnar og geta gestir kynnt sér Njálurefilinn og tekið nokkur spor í hann í tilefni dagsins.