Naflahlaupið verður haldið laugardaginn 24. júní nk og hefst á eftirfarandi tímum

21 km - ræst klukkan 10:00. (Naflahringurinn)
13 km - ræst klukkan 10:30. (Naflastrengurinn)
5,3 km - ræst klukkan 11:00. (Naflakuskið) 
800 metrar - ræst klukkan 11:30
Krakka naflar (Nýtt) 

Naflahlaupið var fyrst haldið sumarið 2010. Nafnið er vísun til þess að um nafla alheimsins sé að ræða en það ár beindust allra augu að þessu svæði vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Naflahlaupið var viðleitni einstaklinga til að sýna fram á að þrátt fyrir allt væri öllu óhætt á þessu svæði, í Naflanum væri hreint og tært loft og góðar aðstæður til útivistar.

Ný vegalengd er í hlaupinu í ár en það er 800 metra hlaup, kallað Krakkanaflinn. Krakkarnir fá að keppa við frjálsíþróttakonu úr FH, Dórótheu Jóhannesdóttur sem hefur meðal annars verið að keppa með landsliði Íslands á Smáþjóðarleikum og á Evrópumótum. Virkilega skemmtilegt fyrir krakkana að fá að hlaupa með svona flottri fyrirmynd. 

Vegalengdir
21 km, 13 km, 5,3 km og 800 metrar. Öllum er þó velkomið að slást í hópinn hvar sem er og velja þannig þá vegalengd sem hentar hverjum og einum.

Hlaupaleið
21 km - Lagt er af stað frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli. Hlaupið upp hjá Sólheimum, hjá Lynghaga, Hjarðartúni, Miðtúni og Akri, svo niður hjá Nýbýlavegi og þaðan götur þræddar (sjá kort). Haldið áfram inn Fljótshlíðarveginn alla leið að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

13 km - Hlaupið frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

5,3 km - Hlaupið er frá skógræktarstöðinni á Tumastöðum að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

800 metrar - hlaupið er allan afleggjarann að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni

Drykkjarstöðvar eru á leiðinni.

Skráning
Gott að skrá sig á Facebooksíðu Naflahlaupsins með því að skrá sig „attending". Facebooksíða hlaupsins er Naflahlaupið 2017.

Þáttökugjald er 1000 krónur og lagt er inn á reikning Naflahlaupsins 0182 - 05 - 60512. Kt. 260787-2929 Í athugasemdum á að vera nafn, bolastærð keppanda og kílómetrar.
Þeir sem vilja fá boli verða að skrá sig og borga þáttökugjald fyrir 20. júní.

Dæmi: Jón Jónsson - L - 21 km

Flottir vinningar eru í boði og hressing við endamarkið í Hótel Fljótshlíð.

Áheit
Eins og síðast er hægt að skora á hlaupara og heita á þá.
2010 rann ágóðinn til Leikskólans Arkar.
2011 rann ágóðinn í starfsemi sjúkraflutinga á Hvolsvelli.
2012 rann ágóðinn til unglingadeildar Dagrenningar.
2013 rann ágóðinn til Grunnskólans á Hvolsvelli.
2014 rann ágóðinn til Elliheimilisins Kirkjuhvols.
2015 rann ágóðinn til Lundar á Hellu.
2016 rann ágóðinn renna til unglingadeildar flugbjörgunarsveitar Hellu. 
Í ár mun ágóðinn renna til heilsugæslustöðvar Hvolsvelli til tækjakaupa. 

Um að gera að láta heita á sig til styrktar góðu málefni.

Hver hlaupari ber ábyrgð á að nálgast áheit sín til áskoranda og skila til framkvæmdastjóra hlaupsins sem koma þeim í réttar hendur að hlaupi loknu.

Nánari upplýsingar:
Framkvæmdastjórar hlaupsins eru Jón Gísli Harðarson og Ómar Smári Jónsson.
Nánari upplýsingar veita þeir félagar í síma 864 2288 (Jón Gísli) og 848 1466 (Ómar Smári).