Klukkan 17:00 í dag verður afhjúpaður minnisvarði um Óskar Sigurjónsson í Húsadal í Þórsmörk en Óskar hefði orðið 88 ára í dag. Óskar Sigurjónsson hóf akstur áætlunarbíla fyrir miðja síðustu öld. Hann var einn stofnenda Austurleiðar og rak fyrirtækið um margra áratuga skeið. Meðal margra viðfangsnefna Óskars var mikil uppbygging á ferðaþjónustu í Húsadal í Þórsmörk. Óskar lést í október 2012, 87 ára að aldri. 

Minnisvarðann er settur saman úr fjórum til fimm stórum grágrýtissteinum af svæðinu og verður honum komið fyrir  við brekkurætur á Stóruflöt, um tuttugu metra frá göngustígnum um Húsadal.

Myndin hér að ofan er úr einkasafni.