Lögreglan á Hvolsvelli hefur ákveðið að opna facebook síðu fyrir embættið og fetar þar með í fótspor fleiri lögreglu umdæma á landinu sem hafa látið ljós sitt skína í netheimum. Á síðunni segir m.a.: "Hér munum við kappkosta eins og við getum að setja inn tilkynningar frá lögreglunni og ekki síst almannavörnum héraðsins sem klárlega á eftir að verða okkur öllum til bóta. Við hvetjum ykkur til að vera dugleg og senda okkur ábendingar og taka þátt í umræðum."

 Hér er facebook síða Lögreglunnar á Hvolsvelli