Leikskólinn Örk á Hvolsvelli auglýsir lausar stöður.

75-100% stöður leikskólakennara

Leikskólinn Örk er 5 deilda leikskóli þar sem starfa um 100 hressir nemendur og um 35 kennarar og starfsmenn. Uppeldisstefna Arkarinnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju. Hugmyndafræðin felur í sér að börnin séu leitandi, gagnrýnin og tileinki sér þekkingu og skilning með ígrundun, lausnaleit, rökhugsun og að þau læri að nýta sér það í leik og starf. Að börn geti tekið vel ígrundaðar ákvarðanir sem byggðar eru á þekkingu þeirra og gildismati.

Hæfnikröfur kennara:

  • Leyfisbréf kennara
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði í ræðu og riti,
  • Búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum,
  • Sýna frumkvæði, sveigjanleika, sjálfstæði og metnað fyrir starfi sínu.
  • Þeir þurfa að vera tilbúnir til að vinna að uppeldi og menntun barna í samræmi við námskrá og í nánu samstarfi við stjórnendur.
  • Tölvukunnátta þ.e. geta unnið á Office pakkann.

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst nk.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um.

Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá og meðmælum á heimasíðu leikskólans http://ork.leikskolinn.is/ undir flipanum - Uppslýsingar – Starfsumsóknir.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum FL við SÍS. Fáist ekki leikskólakennari er heimilt að ráða í stöðuna til eins árs.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir leikskólastjóri í síma 848 - 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.