Það var kátur hópur leikskólabarna og starfsfólks leikskólans sem þrammaði fylktu liði að Kirkjuhvoli í morgun en þar voru mætt börn á aldrinum 1 árs - 6 ára. Tilefnið var að Dagur leikskólans er haldinn 6. febrúar en að þessu sinni ber daginn upp á laugardag. Þetta verður í 14. skipti sem þessum skemmtilega degi er fagnað.

Hópurinn söng hátt og skýrt nokkur lög fyrir íbúa og starfsfólk Kirkjuhvols en um undirleik sá Kristjana Laufey Adólfsdóttir.

Í dag var einnig rugludagur í leikskólanum til skemmtunar og fengu börn og starfsfólk köku í tilefni dagsins.

Myndir frá heimsókninni.