- Visit Hvolsvöllur
- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Leikhópurinn Glætan, sem er hluti af Leikfélagi Austur-Eyfellinga, sýndi leikritin Svínahirðirinn og Leifur ljósöskur í Hvoli 23. og 25. apríl sl. Glætan er hópur barna sem æft hefur framsögn, leikræna tjáningu og fleira er tengist leiklistinni og hefur hópurinn hist vikulega í vetur. Börnin eru alls 23 og eru þau á öllum aldri og koma alls staðar að úr sveitarfélaginu. Margrét Tryggvadóttir hefur leiðbeint hópnum.
Þorsteinn Jónsson tók myndir af hópnum sem má finna hér