Eins og glöggir notendur heimasíðunnar hafa tekið eftir þá hefur hnappur fyrir Íbúavef Rangárþings eystra bæst við á forsíðuna. Þessi vefur er tækifæri fyrir íbúa að hafa samskipti hver við annan um málefni er varða sveitarfélagið

Kynningarfundur og formleg opnun á íbúavefnum verður haldinn mánudaginn 29. apríl, kl. 20:00 í Litla salnum í Hvoli, Hvolsvelli. Þar mun Guðmundur Ágúst Sæmundsson kynna vefinn og þá möguleika sem hann býður upp á.

Við hvetjum alla íbúa til að mæta.

Hér er hægt að komast inn á íbúavefinn.