Kvenfélagið Eining á Hvolsvelli hefur unnið ötult starf að undanförnu og safnað fyrir hjartastuðtæki sem afhent var forsvarsmönnum björgunarsveitarinnar Dagrenningu á Hvolsvelli síðast liðinn miðvikudag. 

Björgunarsveitirnar hafa unnið mikið og gott starf undanfarin ár við að aðstoða ferðamenn, hvort sem er á hálendi eða láglendi, við gæslu eða mannbjörg. Þeir hafa ekki síður verið áberandi við aðstoð í þeim hamförum sem Suðurland hefur mátt takast á við á undanförnum árum.

Hjartastuðtæki er nauðsynlegt tól fyrir allar björgunaraðila og því gjöf sem þessi afar ánægjulegt framtak hjá kvenfélagskonum í Einingu.