Kjötiðnaðarmenn SS stóðu sig vel í Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna sem fram fór um síðustu helgi í húsnæði Menntaskólans í Kópavogi.   

Fimm kjötiðnaðarmenn SS þeir  Hrafn Magnússon, Steinar Þórarinsson, Björgvin Bjarnason, Bjarki Freyr Sigurjónsson og Jón Þorsteinsson sendu samtals 19 vörur inn í keppnina.  Hlutu þeir fjórtán gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.  Því hlutu 90% innsendra vara verðlaun og þar af 75% gullverðlaun. Auk þess féllu í þeirra skaut fimm sérverðlaun auk hins eftirsótta titils Kjötmeistara Íslands, sem Jón Þorsteinsson vann með 250 stigum eða fullu húsi stiga, en það hefur ekki gerst fyrr í sögu keppninnar. 

Í keppnina í heild bárust 143 vörur og hlutu 111 þeirra verðlaun eða 78%.  Gullverðlaun hlutu 35% innsendra vara, 29% silfurverðlaun og 13% bronsverðlaun.  Á þessu má sjá að árangur SS manna er einstakur. 

Keppnin fer þannig fram að kjötiðnaðarmenn senda inn vörur með nafnleynd til dómarahóps, sem dæmir vörurnar eftir faglegum gæðum.  Hver keppandi má senda inn allt að 10 vörur til keppninnar.  Allar vörur byrja með fullt hús stiga eða 50 stig.  Dómarar leita síðana ð öllum hugsanlegum göllum.  Við hvern galla sem finnst, fækkar stigum.  Með þessu fyrirkomulagi geta margar vörur haft gull-, silfur-, eða bronsverðlaun. 

·        Til þess að fá gullverðlaun þarf varan að hafa 49-50 stig og vera nánast gallalaus. 
·        Til þess að fá silfurverðlaun þarf varan að hafa 46-48 stig og má aðeins vera með lítilsháttar galla. 
·        Til þess að fá bronsverðlaun þarf varan að hafa 42 til 45 stig. 
Árangur einstakra manna er sem hér segir: 
Jón Þorsteinsson 
        Kjötmeistari Íslands fullt hús stiga                250 stig. 
        Athyglisverðasta nýjung keppninnar        Salami camemberti 
        Besta vara unnin úr hrossa- eða folaldakjöti        Salami camemberti 
        Besta hráverkaða varan                        Salami camemberti         
        Besta vara unnin úr svínakjöti                Grísa Rillette 
        Átta gullverðlaun                                Hangikjet, Sölpylsur, Katalónskar Bratwurstpylsur, Grísa Rillette, 
                                                Hreindýra lifrarkæfa, Salami Camemberti, Bolabiti og purupopp 
        Ein silfurverðlaun                        Bökuð nautalifrarkæfa 

Steinar Þórarinsson 
        Besta varan unnin úr alifuglakjöti                Lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi 
        Fern gullverðlaun                                Lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi, Lifrarpylsa, 
                                                Blóðpylsa með jarðarberjakeim og Grafið grísafile 

Hrafn Magnússon 
        Ein silfurverðlaun                        Púrtvíns salamí 

Björgvin Bjarnason 
        Tvenn gullverðlaun                        Lamba spægipylsa og Veiðipylsa 

Bjarki Freyr Sigurjónsson 
        Ein bronsverðlaun                        Chili stubbar 

Daníel Ingi Hrafnsson kjötiðnaðarnemi tók þátt í sérstakri nemakeppni í matvælagreinum.  Þar var ekki raðað nema í fyrsta sæti, en hann stóð sig með miklum ágætum og fékk að launum viðurkenningu keppninnar. 

Það er í senn heiður og ánægja að hafa slíka ofurfagmenn í okkar annars vaska og metnaðarfulla fagmannahópi.  Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum þetta árangursríka framlag til eflingar fagmennsku og gæða hjá okkur og Íslenskum kjötiðnaði í heild. 

Á meðfylgjandi hópmynd eru frá vinstri, Steinar Þórarinsson, Bjarki Freyr Sigurjónsson, Jón Þorsteinsson og Björgvin Bjarnason með verðlaunagripi sína.  Á myndina vantar feðgana Hrafn Magnússon og Daníel Inga Hrafnsson. (Ljósm. ÖRS)


Einnig fylgir með mynd af Jóni Þorsteinssyni, kjötmeistara Íslands með sína gripi. (Ljósm. ÖRS).