Kjartan er yfirmaður almannavarna í Rangárvalla-
og Vestur-Skaftafellssýslum og var í forystu viðbragðsaðila sem brugðust
skjótt við þegar boð bárust um að gos væri hafið í Eyjafjallajökli
snemma aðfararnætur sunnudagsins 21. mars.
„Ég þakka þennan
heiður, hann kemur skemmtilega á óvart en ég lít nú þannig á að ég sé
valinn sem fulltrúi fyrir þann stóra hóp Sunnlendinga sem var að vinna í
björgunar- og hjálparstörfum í eldgosunum,” segir Kjartan m.a. í
viðtali í Sunnlenska fréttablaðinu í þessari viku.