Rangárþingi eystra hefur verið úthlutað 202 milljónum króna úr framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar á hjúkrunar– og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli. Styrkurinn er til að byggja viðbyggingu fyrir 12 hjúkrunarrými og bæta með því aðbúnað íbúa. Einnig er styrkurinn til að bæta þjónusturými á Kirkjuhvoli m.a. fyrir nýtt eldhús, matsal, starfsmannaaðstöðu, geymslur, skrifstofuaðstaða o.fl. Viðbyggingin verður 1305 fm  þar sem 779 fm eru fyrir hjúkrunarrýmin og 526 fm er fyrir þjónusturými. Úthlutunin er kærkomin og löngu tímabær en unnið hefur verið markvisst að verkefninu í hátt í 4 ár. Hafist verður handa eins fljótt og auðið er.