Þann 11. desember var líf og fjör í íþróttahúsinu á Hvolsvelli því þá fór fram jólasýning fimleikadeildar Dímonar.  Jólabörn, hreindýr og aðrir iðkendur sýndu árangur æfinganna í vetur og var um mjög skemmtilega sýningu að ræða.

Á þessu ári hefur fimleikadeildin fest kaup á lendingardýnu og dansgólfi. Með þessum kaupum hefur æfingaraðstaða batnað til muna. Öflugir þjálfarar starfa með krökkunum í vetur Aníta Þorgerður Tryggvadóttir, Ásdís Rut Kristinsdóttir og Karítas Björg Tryggvadóttir. Um 60 iðkendur æfa nú innan fimleikadeildarinnar og var mjög ánægjulegt að fá að fylgjast með jólasýningunni þeirra.