Íþrótta og tómstundastyrkur

Foreldrar eru hvattir til að athuga rétt sinn inn á island.is ef niðurstaða reynist jákvæð senda þá inn umsókn ásamt fylgigögnum til Félagsþjónustu Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu. Við minnum á að umsóknarfrestur er til 1.mars 2021.  Miða skal við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020-2021. 

 

Til að sækja um styrkinn þarf að hafa samband við Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu:

a) með því að senda tölvupóst á felagsmal@felagsmal.is

b) hafa samband í gegnum síma 4878125 og biðja um símtal við ráðgjafa vegna tómstundastyrks

c) koma í afgreiðslu félagsþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og fylla þar út umsókn um styrkinn

Með styrkumsókn þarf að fylgja útprentuð staðfesting frá island.is (má einnig vista og senda rafrænt í tölvupósti með umsókninni) um að viðkomandi eigi rétt á styrknum og einnig þarf að fylgja staðfesting á útlögðum kostnaði vegna íþrótta- og tómstundastarfs barns/barna í fjölskyldunni. 

Ef vafi leikur á hvort ákveðið íþrótta- og tómstundastarf sé styrkhæft er hægt að fá leiðbeiningar sbr. leiðirnar hér að ofan.  

Einungis er hægt að sækja um styrk vegna þátttöku í íþrótta- eða tómstundastarfi, ekki til kaupa á íþróttavörum, búnaði eða öðru þess háttar. Einungis er styrkt vegna barna á aldrinum 6-16 ára  fædd á árunum 2005 til 2014, þ.e. á grunnskólaaldri. 

Starfsmenn Félagsþjónustu Rangárvalla- ogVestur- Skaftafellssýslu afgreiða umsóknir sem berast og svara umsækjendum að því loknu eða innan mánaðar frá því að öll gögn liggja fyrir.  Ef viðkomandi fær synjun á umsókn sína frá starfsmönnum félagsþjónustunnar eða er ósáttur við niðurstöðu málsins getur hann skotið málinu til Félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu sem fjallar þá um málið. Erindi þess eðlis skal sent skriflega ásamt rökstuðningi umsækjanda til:

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu

Suðurlandsveg 1-3

860 Hella