Kæru sóknarbörn og vinir.
Nýtið ykkur helgihald kirknanna í Víkurprestakalli um jólin og fjölmennið til kirkju.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til að mæta.
 
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól, farsæld og frið.
Þakka innilega samstarf og vináttu á árinu sem er að líða.
 
Haraldur M. Kristjánsson 
sóknarprestur



Víkurkirkja í Mýrdal
Aftansöngur í Víkurkirkju á aðfangadag kl. 18:00.
Hátíðasvör séra Bjarna Þorsteinssonar.
Samkór Mýrdælinga syngur.
Organisti er Brian R. Haroldsson.
 
Reyniskirkja í Mýrdal
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag,  kl. 13:00.
Kristin Björnsdóttir organisti leiðir almennan safnaðarsöng.
 
Skeiðflatarkirkja í Mýrdal
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag,  kl. 14:00.
Kristin Björnsdóttir organisti leiðir almennan safnaðarsöng.
 
Stóra-Dalskirkja undir Eyjafjöllum

Sameiginleg hátíðarguðsþjónusta á jóladag,  kl. 16:00,
fyrir allar sóknir undir Eyjafjöllum.
Félagar úr kirkjukór Eyfellinga leiða sönginn.
Organisti er Guðjón Halldór Óskarsson.
 
Hjallatún í Vík
Jólahelgistund á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hjallatúni,
þriðjudaginn 29. desember, kl. 15:00.
Félagar úr Samkór Mýrdælinga leiða sönginn.
Organisti er Brian R. Haroldsson.
 
Sameiginleg Jólatrésskemmtun kvenfélaganna undir Eyjafjöllum
verður haldin í félagsheimilinu Fossbúð í Skógum,
sunnudaginn 27. desember nk.  kl. 14:00.
Þar mun sóknarprestur flytja stutta hugvekju.