Fyrstu áfangastaðir Háskólalestarinnar eru Stykkishólmur og Hvolsvöllur en á ferðaáætlun lestarinnar í sumar eru samtals níu viðkomustaðir. Verkefnið er unnið í samstarfi við Rannsóknasetur HÍ á landsbyggðinni, Háskóla unga fólksins, Vísindavefinn, grunnskóla, sveitarfélög og fleiri. 

Heimsókn Háskólalestarinnar á hverjum áfangastað stendur yfirleitt í tvo daga, þann fyrri sækja grunnskólanemar margvísleg námskeið en síðari dagurinn er ætlaður gestum á öllum aldri. Viðkomustaðir lestarinnar verða Stykkishólmur, Hvolsvöllur, Höfn í Hornafirði, Skagaströnd, Húsavík, Bolungarvík, Egilsstaðir, Sandgerði og Seltjarnarnes.  

Hvolsvöllur 1. og 6. maí
Á Hvolsvelli hefur verið undirbúin umfangsmikil dagskrá sunnudaginn 1. maí í Hvolsskóla kl. 13 til 17.

Þar verða sýnitilraunir af ýmsu tagi, Sprengju-Kári mætir á svæðið, teikniróla sýnd og stjörnutjald ásamt japanskri menningu.  Vísindavefur HÍ verður á staðnum og kynnt verða undur jarðar og farið verður í spennandi úti- og innileiki fyrir alla fjölskylduna. Tónlist mun óma með eldorgelinu, gospelkór Suðurlands tekur nokkur lög og Ástráður veitir góð ráð um ástina.

Landgræðslustöð ríkisins að Gunnarsholti, Háskólafélag Suðurlands og Rannsóknasetur HÍ á Suðurlandi taka þátt í dagskránni með kynningum og erindum. 
Meðal erinda verða:
Gosið í Eyjafjallajökli, stórt eða lítið – Magnús Tumi
Skógar og Aska, Hekluskógar og Þórsmörk – Hreinn Óskarsson
Katla jarðvangur (geopark), efling byggðar og samfélags – Ragnhildur Sveinbjarnardóttir
Um komur farfugla til Íslands – Tómas Grétar Gunnarsson
Listin að lífláta lúpínu – Magnús Hrafn Jóhannsson

Kaffisala verður á meðan á dagskrá stendur til styrktar fræðslu- og kynningarferð kennara Hvolsskóla til Skotlands.

Föstudaginn 6. maí sækja nemendur 5. – 10. bekkjar Hvolsskóla námskeið í Háskóla unga fólksins í stjörnufræði, dönsku, kynjafræði, nýsköpun, jarðvísindum og stjórnmálafræði.

Verið velkomin á skemmtilega dagskrá þann 1. maí í Hvolsskóla