Á sumardaginn fyrsta (24. apríl) kemur Guðríður Torfadóttir eða Gurrý sem þjálfaði keppendur í Biggest loser Ísland og verður með fyrirlestur í Hvolnum á Hvolsvelli kl. 14:00. Með henni verður Jónas Pálmar sem sigraði heimakeppnina með glæsibrag en hann er einmitt búsettur á Hvolsvelli. Þau munu fara yfir keppnina og gefa góð ráð varðandi heilsu, næringu og hreyfingu. 

Allir eru hjartanlega velkomnir