Frá Tónlistarskóla Rangæinga

Þann 17. nóvember voru samstarfstónleikar Tónlistarskóla Rangæinga og Harmóníkufélags Rangæinga- og Selfoss haldnir á Hvolsvelli. Tónleikarnir vöktu mikla lukku og augljóst er að harmóníkan er sívinsæl í okkar sveitum. Nú stunda sjö nemendur nám á harmóníku við skólann hjá Grétari Geirssyni og hefur aðsókn sjaldan verið meiri. Athygli vekur að nemendur eru ungir að árum og áhuginn mikill. Er þessi aukna aðsókn ekki síst afrakstur kynninga og kennslu á harmóníku í forskóla sl. ár. 
Harmóníkufélagið ýtir undir áhugann í samfélaginu með ýmsum hætti með spilamennsku og það hefur gefið skólanum harmóníkur í gegn um árin. Í haust gaf skólanum vandaða harmóníku til að nota í kennslu og um leið fjárfesti skólinn  í tveimur harmóníkum til að leigja út. Samstarf um eflingu harmóníkunnar er báðum aðilum kærkomið og skemmtilegt. Næstu samstarfstónleikar verða haldnir á vorönn í Safnaðarheimlinu á Hellu.