Laugardaginn 18. apríl síðastliðinn stóð Ungmennafélagð Trausti fyrir vorhreinsun meðfram þjóðveginum undir Vestur Eyjafjöllum í Rangárþingi eystra.

Þó veðrið hafi ekki leikið við íbúa undir Eyjafjöllum þann daginn tóku um 50 manns þátt og sýndu hvað í þeim býr, en yfir daginn safnaðist saman rusl sem fyllti tæplega einn gám.
En þess má geta að hópurinn vann hver á sínu svæði og virti því að sjálfsögðu reglur um samkomubann og tveggja metra reglur.

Þetta er í þriðja sinn sem UMF Trausti stendur fyrir hreinsun sem þessari en þess má geta að þegar hreinsað var í fyrsta skipti var um þriðjungi meira rusl.
Svæðið sem hreinsað var nær frá Varmahlíð í austri og vestur að A-Landeyjamörkum. Einnig voru hreinsaðir hliðarvegir innan Vestur Eyjafjalla.

Ungmennafélagið skorar á önnur félög sem og einstaklinga til að nýta vorið í að hreinsa nærumhverfi sitt og efna til hreinsunar dags enda Dagur umhverfisins á næsta leiti.

Förum inn í sumarið með hreint í kringum okkur og veirulaus.