Vinnuskóli Rangárþings eystra hefst mánudaginn 1. júní 2020 kl. 9:00.

Unglingar sem fæddir eru 2004 - 2007 og hafa áhuga á því að starfa hjá vinnuskóla Rangárþings eystra í sumar er bent á að senda inn umsóknir fyrir 22. maí n.k. Vinnuskólinn verður starfræktur frá kl. 9:00 - 16:00 alla virka daga frá 1. júní til 31. júlí.  Unglingar fæddir 2007 geta fengið vinnu frá kl. 9:00 - 12:00 eða kl. 13:00 - 16:00. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í forstofunni við Austurveg 4 þar sem skrifstofan er enn lokuð eða heimasíðu Rangárþings eystra en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu sveitafélagsins í síma 488-4200, þar sem tekið verður við umsóknum í síma.

Starfsfundur með starfsmönnum vinnuskólans og foreldrum þeirra verður í félagsmiðstöðinni, Féló, fimmtudaginn 28. maí kl: 18:00. Þar verður farið yfir starfið, skyldur og réttindi ungmennanna. Æskilegt er að allir mæti.

Ólafur Örn Oddsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Rangárþings eystra.