Sem kunnugt er hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru (COVID-19).

Rangárþing eystra hefur unnið viðbragðsáætlun sem finna má hér á heimasíðu sveitarfélagsins.

Viðbragðsáætlun þessi á að þjóna þeim tilgangi að vera stjórnendum stofnana sveitarfélagsins til stuðnings um það hvernig takast eigi á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og/eða eignum. Áætlun þessi gildir fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Ábyrgð á viðbragðsáætlun er á höndum sveitarstjóra og viðkomandi forstöðumanna.

Viðbragðsáætlun þessi hefur þegar verið virkjuð og viðbragðsteymi hefur tekið til starfa.

 

Viðbragðsáætlun Rangárþings eystra má lesa í heild sinni hér. 

 

Anton Kári Halldórsson
Sveitarstjóri Rangárþings eystra