Frá vinstri, Tinna Erlingsdóttir formaður KFR, Ólafur Örn Oddsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og An…
Frá vinstri, Tinna Erlingsdóttir formaður KFR, Ólafur Örn Oddsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri.

Í dag, þann 28. apríl 2020, undirrituðu Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra og Tinna Erlingsdóttir formaður Knattspyrnufélags Rangæinga undir þjónustusamning vegna útbreiðslu knattspyrnu í íþróttastarfi barna og unglinga.

Samningnum er ætlað að efla samstarf milli sveitarstjórnar Rangárþings eystra og KFR og tryggja öflugt íþrótta-, tómstunda og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga í sveitarfélaginu. Samningnum er ætlað að tryggja enn frekar starfsemi KFR enda er sveitarstjórn þeirrar skoðunar að það sinni öflugu og viðurkenndu forvarnarstarfi.

 

Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á málefni fjölskyldunnar enda er fjölskyldan hornsteinn samfélagsins. Með því að leggja mikla áherslu á að efla fjölskylduna styrkjum við undirstöðuna að heilbrigðu og jákvæðu samfélagi. Samfella í skóla- og tómstundastarfi og öflugt forvarnarstarf er mikilvægur þáttur í því að ná fram markmiðum sveitarstjórnar um að byggja upp enn fjölskylduvænna samfélag.