Umhverfisnefnd Hvolsskóla kom og fundaði með sveitarstjóra á skrifstofu sveitarfélagsins föstudaginn 3. mars sl. Farið var yfir þau málefni sem að hafa brunnið á nefndinni varðandi umhverfismál í sveitarfélaginu. Þar bar mest á sorpmálum, rætt um merkingar á sorptunnum, moltu og ýmislegt fleira. Umhverfisnefndin hefur líka tekið saman tölur yfir matarsóun í skólanum sem þau fóru yfir og mjög áhugaverðar umræður spunnust upp um hin ýmsu mál tengd umhverfinu. Anton Kári, sveitarstjóri, fór vel yfir málin með nefndinni en oft var hart að honum sótt og höfðu nemendur margt til málanna að leggja sem var gaman að hlýða á.

Umhverfisnefnd Hvolsskóla er skipuð einum nemenda úr hverjum bekk ásamt skólastjóra, kennurum og starfsfólki. Þórunn Óskarsdóttir hefur leitt nefndina og er hún verkefnisstjóri Grænfánans í Hvolsskóla.