Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra 2018

Umhverfis- og náttúruverndarnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tillögum til Umhverfisverðlauna Rangárþings eystra 2018

Verðlaun verða veitt í eftirtöldum flokkum: 
Umhverfisverðlaun árið 2018 fyrir garð. 
Umhverfisverðlaun árið 2018 fyrir býli. 
Umhverfisverðlaun árið 2018 fyrir stofnun / fyrirtæki

Miklu máli skiptir að íbúar sveitarfélgasins taki nú höndum saman og tilnefni þá sem skarað hafa fram úr í sveitarfélaginu við að fegra umhverfi sitt.

Hægt er að skila inn tilnefningum á skrifstofu sveitarfélagsins, Austurvegi 4 og í tölvupósti á netfangið: arnylara@hvolsvollur.is fyrir 15. ágúst nk.

Umhverfis- og náttúruverndarnefnd