Þar sem nú eru vorleysingar hefur verið ákveðið að loka tímabundið stíg um urð norðan megin við Seljalandsfoss. Lokunin mun íklega vara fram yfir helgi.

Eftir rigningarnar í gær og nótt hafði moldarbarð hrunið á göngustíginn og varð af því mjög hált og óþrifalegt á stígnum og var honum lokað á meðan á lagfæringum stóð en Þorsteinn Jónsson hjá Steinastein stjórnaði þeim lagfæringum. Hægt er að fara á bak við fossinn sunnan megin upp járn tröppurnar en fara verður sömu leið til baka. Þá er einnig hægt að fara upp timbur tröppurnar norðan megin og á pallinn þar fyrir ofan.

Úr því að búið var að loka og stígurinn illa farinn var tækifærið notað til að fella niður tvo stóra steina sem voru orðnir losaralegir og hætta stafaði af. Nú er bara að bíða á meðan rigningin og fossúðinn skolar moldina og hálkuna af stígnum og talið forsvaranlegt að opna aftur.