Óskað er eftir tilboðum/verðkönnun í snjómokstur á tengivegum í Rangárþingi eystra 2021-2024. 

Verkkaupi er Rangárþing eystra og Vegagerðin. Umsjónaraðili verkkaupa verður Ólafur Rúnarsson aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, olirunars@hvolsvollur.is.

Um er að ræða mokstur á tengivegum í Rangárþingi eystra, sem skiptist í þrjú svæði. Svæðin eru eftirtalin:

1. Fljótshlíð og Hvolhreppur hinn forni

2. Austur- og Vestur Landeyjar

3. Austur- og Vestur Eyjafjöll

Hægt er að bjóða í mokstur á einu svæði eða fleirum.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur, eigi síðan er kl. 14:00 þriðjudaginn 30. nóvember 2021. Tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska kl. 14:15.

Upplýsingar og gögn er hægt að nálgast í netföngum bygg@hvolsvollur.is og olirunars@hvolsvollur.is.

F.h. verkkaupa:

Ólafur Rúnarsson, aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, olirunars@hvolsvollur.is, sími; 4884200.