Rangárþing eystra auglýsir lausan til umsóknar skólaakstur við Hvolsskóla. Akstursleiðin er breytileg eftir notkun og þörf. Í dag liggur leiðin að Móeiðarhvoli, inn í Vallarkrók og býlin í kringum Hvolsvöll.

Skólabílstjóri þarf að hafa öll tilskilin réttindi til aksturs farþega og bifreið sem notuð verður skal vera í fullkomnu ástandi. Viðkomandi þarf að vera reglusamur, stundvís og þjónustulipur og hann þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu Rangárþings eystra fyrir 8. apríl 2019.

Nánari upplýsingar veitir Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri, í síma 488 4200 eða í gegnum netfangið anton@hvolsvollur.is.