Verkstjóri vinnuskóla:

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Viðkomandi er verkstjóri vinnu­skólans og starfar undir verkstjóra áhaldahússins. Hann stjórnar og samræmir vinnu flokkstjóra sem hann hefur umsjón með. Hann ber ábyrgð á skilum á tímaskráningum til launafulltrúa. Verkstjóri skilar greinargerð um vinnu­skólann að loknu sumri.

Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera orðinn tuttugu ára og reynsla af vinnu með unglingum er æskileg. Hann þarf að hafa stjórnunar­hæfileika, samskipta- og skipulagsfærni. Verkstjóri skal vera reyklaus og undirmönnum sínum góð fyrirmynd. Hann þarf að hafa bílpróf og æskilegt er að hann hafi réttindi til að keyra 17 manna bíl (D1).

 

Flokkstjóri í vinnuskóla:

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Flokkstjóri starfar undir stjórn verkstjóra vinnuskólans. Hann stjórnar starfi vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild og verkvit, er uppbyggilegur og góð fyrirmynd. Flokkstjóri ber ábyrgð á tímaskýrslum og skilum á þeim til verkstjóra.

Hæfniskröfur: Æskilegt er að viðkomandi sé orðinn 18 ára og hafi reynslu af vinnu með unglingum. Hann þarf að hafa bílpróf, stjórnunarhæfileika, samskipta- og skipulagsfærni. Flokkstjóri skal vera reyklaus og nemendum góð fyrirmynd í heilbrigðum lífstíl.

 

Starfsmenn í áhaldahúsi við Ormsvöll:

Helstu verkefni eru ábyrgðarsvið: Sláttur á lóðum sveitarfélagins og margvísleg umhverfistengd verkefni á vegum sveitarfélagsins.

Hæfniskröfur: Lágmarksaldur er 17 ára og æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf. Starfsmaðurinn þarf að búa yfir góðum hæfileika til samskipta, vera vinnusamur, með verkvit og stundvís.

 

Umsóknarfrestur er til 31. mars 2021.

 

Athygli skal vakin á því að ekki er víst að hægt verði á ráða inn eins marga sumarstarfsmenn og við gerðum í fyrra og hvetjum við ykkur til að hafa augun opin fyrir öðrum atvinnumöguleikum.

 

Umsóknir sendist til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á olafurorn@hvolsvollur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins.