Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Íþrótta og afrekssjóð Rangárþings eystra. Umsóknir skulu berast á netfangið olafurorn@hvolsvollur.is fyrir 1. mars nk.

Markmið sjóðsins er að veita einstökum íþrótta og afreksmönnum, sem keppa fyrir hönd íþróttafélags í Rangárþingi eystra viðurkenningu og fjárstuðning til að auðvelda þeim æfingar og þátttöku í mikilvægum keppnum.

Stjórn sjóðsins er skipuð fulltrúum Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar.

Hér má nálgast reglugerð sjóðsins.