Á 289. fundi sveitrstjórnar lagði D-listi fram tillögu um spurningakönnun meðal íbúa um sameiningaviðræður og var í kjölfarið samið við Félagsvísindastofnun um gerð könnunarinnar. 

Könnunin, sem var símakönnun, var framkvæmd í lok mars og byrjun apríl og náði til allra íbúa sveitarfélagsins, 18 ára og eldri. Erfiðlega gekk að hafa upp á erlendum ríkisborgurum sem og yngra fólki eða um þriðjungi skráðra íbúa. 1.557 íbúar voru á lista en 683 svöruðu könnuninni og var heildarsvarhlutfall því 43%.

Helstu niðurstöður voru á þá leið að 66% svarenda voru fylgjandi því að Rangárþing eystra myndi sameinast öðru eða öðrum sveitarfélögum. Af öllum þátttakendum voru 63% svarenda fylgjandi sameiningu Rangárþings eystra og Rangárþings ytra og 64% fylgjandi sameiningu sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu. Aðeins 40% kjósenda voru hlynntir sameiningu Rangárþings eystra og Mýrdalshrepps. Séu eingöngu þeir sem eru fylgjandi einhvers skonar sameiningu skoðaðir þá eru flestir hlynntir sameiningu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepp eða 87% og næstum því jafnhátt hlutfall er fylgjandi sameiningu milli Rangárþings eystra og Rangárþings ytra eða 86%. Mun færri, sem hlynntir voru einhverri sameiningu, voru hlynntir sameingu Rangárþings eystra og Mýrdalshrepps eða 51%.

Skýrslu um niðurstöðurnar má finna hér