Nemendur með lögheimili á Suðurlandi sem stunda nám á höfuðborgarsvæðinu geta keypt sér Nemakort Stætó hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Kortið gildir eina önn innan svæðis á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.

Nemakortið kostar 90.000 kr. sem leggja þarf inn á reikning Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. 
Reikningsnúmer: 586-26-100122 á kennitölu: 480775-0159.

Svona gerir þú:

Fyrst leggur þú inn á reikning Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Því næst sendir þú kvittunina og staðfestingu á skólavist á netfangið sass@sass.is ásamt nafni korthafa, kennitölu, heimilisfangi og ljósmynd.

Innan 7 til 10 virkra daga færðu Nemakortið sent í ábyrgðarpósti á lögheimili þitt.