Hvolsskóli auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar

Starfshlutfall er 50-100%. Um er að ræða ýmist tímabundna ráðningu fyrir næsta skólaár vegna leyfa eða framtíðarráðningu. Auglýst er eftir:

  • Stuðningsfulltrúa  - um 70% stöðugildi
  • Starfsmanni í ræstingar - 50% starfshlutfall

Hæfniskröfur:

Umsækjandi þarf að búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði og metnað fyrir starfi sínu. Hann þarf einnig að hafa gott vald á íslenskri tungu eða vera tilbúinn að læra hana, vera við góða heilsu, vera jákvæður og tilbúinn að starfa eftir þeim stefnum og gildum sem eru í Hvolsskóla.

Fylgigögn með umsókn:

Ferilskrá:

  • Upplýsingar um menntun
  • Upplýsingar um fyrri störf
  • Upplýsingar um meðmælendur

 

Hvolsskóli er grunnskóli í Rangárþingi eystra. Þar eru um 240 nemendur í 1.-10. bekk og eru um 45% þeirra að koma með skólabíl á morgnana. Skólinn starfar undir merkjum Uppeldis til ábyrgðar, ART og er Grænfánaskóli, Heilsueflandi grunnskóli og Kötlu jarðvangs – UNESCO skóli. Frekari upplýsingar er að finna á heimsíðu skólans: www.hvolsskoli.is

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 488 4240 eða á netfanginu skolastjori@hvolsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2019 og skulu umsóknir berast á  á netfangið skolastjóri@hvolsskoli.is ásamt umbeðnum fylgigögnum.