Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir á Hvolsvelli og Ytri-Skógum, lausar til úthlutunar.

Hallgerðartún, Hvolsvelli: 5 lóðir undir einbýlishús, 6 lóðir undir parhús og 2 lóðir undir 3ja íbúða raðhús.

Hvolstún 21, Hvolsvelli: 1 lóð undir einbýlishús

Vistarvegur 2-4, Ytri-Skógum: 1 lóð undir parhús

Vistarvegur 3, Ytri-Skógum: 1 lóð undir einbýlishús

Ormsvöllur 11 undir iðnaðar- og athafnastarfsemi.

Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, bygg@hvolsvollur.is

Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2022. Umsóknum skal skilað rafrænt í gengum heimasíðu sveitarfélagsins www.hvolsvollur.is.

 

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi