Starfshlutfall er 50-100%. Um er að ræða ýmist tímabundna ráðningu fyrir næsta skólaár vegna leyfa eða framtíðarráðningu. 
Náttúrufræðikennara á elsta stig í 50% stöðu
Textílmenntarkennari í 65% stöðu
Umsjón-/ eða kennsla á yngsta stig 70-100%
Umsjón-/ eða kennsla á mið- eða elsta stig 70-100%

Menntunarkröfur:
B.Ed. gráða og heimild til kennslu í grunnskóla. 

Hæfniskröfur:
Umsækjandi þarf að búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði og metnað fyrir starfi sínu. Hann þarf einnig að hafa gott vald á íslenskri tungu, vera við góða heilsu, vera jákvæður og tilbúinn að starfa eftir þeim stefnum og gildum sem eru í Hvolsskóla. 

Starfssvið:
Umsjón með bekk/nemendahópi með þeim skyldum sem felast í því starfi.
Kennsla faggreina
Lestrarkennsla er mikilvægur þáttur.
Samskipti við foreldra.
Seta í teymum/nefndum eftir því sem við á.

Fylgigögn með umsókn:
Ferilskrá:
Upplýsingar um menntun – leyfisbréf.
Upplýsingar um fyrri störf.
Upplýsingar um meðmælendur.


Hvolsskóli er grunnskóli í Rangárþingi eystra. Þar eru um 230 nemendur í 1.-10. bekk og eru um 45 % þeirra að koma með skólabíl á morgnana. Skólinn starfar undir merkjum Uppeldis til ábyrgðar, ART og er Grænfánaskóli, Heilsueflandi grunnskóli og Kötlu jarðvangs – UNESCO skóli. Frekari upplýsingar er að finna á heimsíðu skólans: www.hvolsskoli.is 
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 488 4240 eða á netfanginu skolastjori@hvolsskoli.is 
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2018 og skulu umsóknir berast á skrifstofu skólans eða á netfangið skolastjóri@hvolsskoli.is ásamt umbeðnum fylgigögnum.