Heilbrigðseftirlit Suðurlands kynnir átakið Hreint Suðurland sem er hreinsunarátak miðað að lóðum og lendum í umdæminu.

Átakið er áskorun til lóðarhafa, íbúa og landeigenda á Suðurlandi, að þeir gangi í það að hreinsa af lóðum sínum og lendum, allt það sem getur valdið ónæði, mengun eða lýti á umhverfinu. Jafnframt verður hægt að krefjast lagfæringa og viðgerða á lóðum, girðingum og mannvirkjum ef nauðsynlegt þykir, auk þess sem heimilt er að láta fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök og sambærilega hluti að undangenginni viðvörun á, kostnað eigenda – sjá nánar hér