Upp hefur komið grunur um kóligerlasmit, en ekki e-coli eins og áður var sagt, við sýnatöku á köldu vatni á bæ í Vestur Landeyjum.

Við Kóligerlasmit sem þetta ætti neysla vatnsins ekki að hafa áhrif á þorra neytenda en samt ættu sérstaklega viðkvæmir neytendur að nota soðið neysluvatn.

Athugið að þessi tilkynning á aðeins við um íbúa tengda við Tunguveitu, bæir í Vestur Landeyjum, hluta Fljótshlíðar og Bakkabæir í Rangárþingi ytra.

Leiðbeiningar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands um viðbrögð við því þegar neysluvatn mælist örverumengað má finna hér: Örverumengað neysluvatn.

Ef þurfa þykir að sjóða neysluvatn eru leiðbeiningar um það hér: Þegar sjóða þarf neysluvatn.