Skógræktarfélag Rangæinga hefur tekið að sér stórt gróðursetningaverkefni fyrir Kolvið á Geitasandi á Rangárvöllum.

Okkur vantar fólk til að gróðursetja og er þetta alveg tilvalin fjáröflun fyrir íþróttafélög, kóra, björgunarsveitir eða aðra sem áhuga hafa. Greitt er fyrir hverja plöntu sem í jörð fer.

Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður H Heiðmundsdóttir í síma 869-2042.