Það verður mikið um að vera í Rangárþingi eystra helgina 16.-18. júlí og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 

 

Lava Centre er opið alla helgina frá 09:00-16:00

Lava- Eldfjalla og Jarðskjálftamiðstöðinn opnaði aftur 9. júlí s.l. þar er fjölbreytt afþreyingar- og upplifunarmiðstöð helguð þeim gríðarlegu náttúruöflum sem hófu að skapa Ísland fyrir nærri 20 milljón árum síðan. Ný sýning sem tengist eldgosinu við Fagradalsfjall hefur opnað sem og nýr gangur sem er tileinkaður gosinu auk fjölda annarra upplýsinga. 

 

Ísbúðin Valdís er opin alla helgina frá 12:00-23:00

Það verður enginn svikinn af því að koma við í Ísbúðinni Valdísi og fá sér eina kúlu eða tvær. En svo bjóða þau upp á ýmislegt fleira en bara kúluís, þar er einnig hægt að fá sjeika, gæðinga, kaffi, heitt súkkulaði og belgískar vöfflur.

Ef eitthvað er að marka þá veðurspá sem er fyrir sveitarfélagið um helgina verður alveg tilvalið að koma við í Valdísi og kæla sig niður.

 

Sveitabúðin Una er opin alla helgina. 

Í sveitabúðinni Unu getur þú fundið allt það sem hugurinn girnist. Allt frá lopa til leikfanga og minjagripa til matvara, þar er lögð áhersla á íslenska hönnun og handverk úr héraði.

Á föstudögum kl 12:00 opnar svo grænmetismarkaður með lífrænu íslensku grænmeti frá Sólheimum. 

 

Jazz undir fjöllum

Jazz undir fjöllum, árleg jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, verður haldin í átjánda sinn laugardaginn 17. júlí.
Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram í félagsheimilinu Fossbúð laugardagskvöldið 17. júlí kl. 21:00. Þar kemur fram kvartett söngkonunnar Stínu Ágústsdóttur en hún býr og starfar í Svíþjóð þar sem hún hefur gert garðinn frægan. Með henni leika þeir Agnar Már Magnússon á Hammond-orgel, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Þau munu flytja hressilega og fjölbreytta dagskrá.

 

Í Skógakaffi verður boðið upp á tónlist laugardaginn 17. júlí frá kl. 14-17. Þar verða óformlegri tónleikar eða nokkurskonar jam session. Sigurður Flosason leikur á saxófón, Snorri Sigurðarson á trompet, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Agnar Már Magnússon á Hammond-orgel og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Þeir mun flytja fjölbreytta efnisskrá. Einnig munu Andrés og Agnar leika lög af nýútkominni plötu sinn „Aldarfar“ en á henni heiðra þeir Jón Múla Árnason 100 ára og verk hans. Ókeypis er inn á þessa tónleika og reiknað með að gestir geti komið og farið að vild á meðan á tónleikunum stendur.

 

Nína, myndhöggvari í Fljótshlíð

Hrafnhildur Schram listfræðingur ræðir um Nínu Sæmundsson myndhöggvara (1892-1965) að Kvoslæk í Fljótshlíð laugardaginn 17. júlí kl. 15.00.

Nína fæddist í Nikulásahúsum, skammt austan við Hlíðarenda í Fljótshlíð. Þar er nú Ninulundur til minningar um hana, fyrstu íslensku konuna sem helgaði sig höggmyndalist.

Á liðnum vetri veitti ríkisstjórn Íslands félaginu Afrekshugur fjórar milljónir króna í styrk til að láta gera afsteypu af verki Nínu Afrekshugur, Spirit of Achievement, táknmynd Waldorf Astoria hótelsins í New York síðan 1931. Verður afsteypan reist á Hvolsvelli.

Hrafnhildur Schram ritaði ævisögu Nínu sem Crymogea gaf út árið 2015

 

Ratleikur Rangárþings eystra

Ratleikur Rangárþings eystra er skemmtilegur leikur þar sem allir geta tekið þátt. Leikurinn er hafinn og stendur til 27. ágúst. Engin flögg, engin göt og ekkert vesen!

Um er að ræða átta skemmtileg svæði í Rangárþingi eystra sem ættu að höfða til flestra. Við hvern stað eru góð bílastæði og því tilvalið að leggja bílnum og leika sér aðeins nú eða fara í fjallgöngu, eftir því sem við á. Staðirnir eiga það sameiginlegt að þar er hægt að njóta samveru saman.

Við hvern stað skal taka mynd af sér og senda myndina á heilsueflandi@hvolsvollur.is merkta nafni.

Dregið verður úr innsendum myndum, því fleiri staðir því meiri líkur á vinning. Úrslit verða tilkynnt á Kjötsúpuhátíðinni 28. ágúst.

Gönguleiðir og svæði ratleiksins 2021 má sjá hér.

 

Ljósmyndasýning 860+

 

Ljósmyndahópurinn 860+ hefur sett upp sína árlegu ljósmyndasýningu á miðbæjartúninu á Hvolsvelli.

860+ er félagskapur Ljósmyndara í Rangárþingi eystra og nágrenni. Í félagskapnum eru áhugamenn á öllum stigu og menntaðir ljósmyndarar.

Á sýningunni í ár má sjá ljósmyndir eftir 18 ljósmyndara.