Á myndinni eru í aftari röð f.v. Valtýr Valtýsson, Guðmundur J. Gíslason, Anton Kári Halldórsson og …
Á myndinni eru í aftari röð f.v. Valtýr Valtýsson, Guðmundur J. Gíslason, Anton Kári Halldórsson og Ágúst Sigurðsson. Í fremri röð f.v. Hjalti Tómasson og Ingólfur Rögnvaldsson.

Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu kom saman til fundar þann 20.2.2020 og undirritaði verksamning við Ingólf Rögnvaldsson frá Trésmiðju Ingólfs ehf. um 2. áfanga við byggingu nýrrar slökkvistöðvar á Hellu. Fyrirtæki Ingólfs átti lægsta tilboð í verkið samtals 32.585.507 kr. en kostnaðaráætlun verksins hljóðaði uppá 38.331.646 kr. Umsjón og eftirlit með verkinu af hálfu verkkaupa verður í höndum Ólafs Rúnarssonar aðstoðarmanns byggingarfulltrúa Rangárþings eystra og eldvarnaeftirlitsmanns Brunavarna Rangárvallasýslu bs. Um er að ræða fullnaðarfrágang við framtíðar slökkvistöð Brunavarna Rangárvallasýslu á Hellu. Á neðri hæð hússins verður tækjasalur auk snyrtiaðstöðu en á þeirri efri verður starfsmannarými auk skrifstofuaðstöðu. Heildarverklok eru 15. maí 2020.

Mynd: Hjalti Tómasson stjórnarformaður Brunavarna Rangárvallasýslu bs. og Ingólfur Rögnvaldsson eigandi Trésmiðju Ingólfs ehf.
Mynd: Hjalti Tómasson stjórnarformaður Brunavarna Rangárvallasýslu bs. og Ingólfur Rögnvaldsson eigandi Trésmiðju Ingólfs ehf.