Opið hús að Austurvegi 4 á Hvolsvelli

Miðvikudaginn 12. desember nk. verður opið hús í skrifstofurýminu á 2. hæð að Austurvegi 4 á Hvolsvelli milli kl. 15:00 – 17:00. Þar gefst íbúum og öðrum gestum tækifæri til að skoða nýjar skrifstofur sveitarfélagsins Rangárþings eystra sem og annarra fyrirtækja og stofnanna sem þar eru til húsa.

 Að þessu tilefni mun einnig ný heimasíða sveitarfélagsins verða tekin í notkun.