Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru auglýstar tillögur að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024.

Ráðagerði – Aðalskipulagsbreyting
Breytingin gerir ráð fyrir því að núverandi landbúnaðarsvæði (L) verði breytt í frístundabyggð (F) fyrir allt að 8 frístundalóðir. 

Eyvindarholt – Aðalskipulagsbreyting
Breytingin gerir ráð fyrir því að núverandi landbúnaðarsvæði (L) verði breytt í frístundabyggð (F) fyrir allt að 14 frístundalóðir. 

Guðnastaðir/Skækill – Aðalskipulagsbreyting
Breytingin gerir ráð fyrir því að núverandi landbúnaðarsvæði (L) verði breytt í flugbraut/lendingarstaður (FB). 

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er eftirfarandi deiliskipulagstillaga í Rangárþingi eystra auglýst.

Hvolsvöllur miðbær – Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagstillagan tekur til svæðis sem er beggja vegna þjóðvegar nr. 1 þar sem hann fer um Hvolsvöll. Skipulagssvæðið afmarkast til norðurs að aðveitustöð Rariks. Til vesturs afmarkast skipulagssvæðið af beinni línu samhliða langhlið kyndistöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Til suðurs afmarkast skipulagssvæðið af Austurvegi 1 og til austurs af Vallarbraut. Stærð skipulagssvæðisins er um 14 ha.

Ofangreindar skipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2018. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 24. desember 2018. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. 


F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason
Fulltrúi skipulags- og byggingarmála