Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.

Ystabæliskot – Deiliskipulagstillaga, Greinargerð

Tillagan tekur til afmörkunar fimm íbúðarlóða sem hver um sig er ca. 3,4 ha. Á hveri lóð verður heimilt að byggja allt að fimm hús með heildarbyggingarmagni allt að 450 m2.

Skóla- og íþróttasvæði á Hvolsvelli – Deiliskipulagstillaga, Skýringaruppdráttur, Greinargerð

Tillagan tekur til svæðis sem er um 13 ha að stærð. Svæðið afmarkast til austurs af Vallarbraut, íbúðarbyggð við Njáls- og Gunnarsgerði, Norðurgarði, Öldugerði og Litlagerði og til suðurs að miðsvæði Hvolsvallar. Norðan og vestan við svæðið er óbyggt landsvæði. Meginmarkmið skipulagsins er að skilgreina lóðir fyrir íþrótta-, skóla- og leikskólastarfemi. Gert er ráð fyrir að skilgreina nýja lóð fyrir 8-10 deilda leikskóla auk byggingarreits fyrir fjölnota íþróttahús og mögulegar stækkanir á grunnskóla, sundlaugarsvæði og íþróttahúsi. Endurskilgreina á Vallarbraut og aðkomu að grunnskólanum m.t.t. umferðaröryggis, auk þess sem stígakerfi og bílastæði verða endurskilgreind..

Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 17. febrúar 2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemd til 31. mars 2021. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi