Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýst eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.

Litlatún – Deiliskipulagstillaga

Deiliskipulagið nær til um 1,5 ha landspildu úr Kirkjulækjarkoti. Á byggingarreit B1 er heimilt að byggja allt að 190 m2 íbúðarhús með bílskúr, saman eða í sitthvoru lagi. Á byggingarreit B2 er heimilt að byggja allt að 60 m2 gestahús eða geymslu.

Efri-Úlfsstaðir – Deiliskipulagstillaga

Um er að ræða þrjá byggingarreiti, alls að stærð 4510 m2. Á byggingarreit B1 er gert ráð fyrir 3 gestahúsum, hvert um sig allt að 80 m2 að stærð með mænishæð allt að 5,0m. Á B2 er gert ráð fyrir 2 gestahúsum, hvert um sig allt að 80 m2 að stærð með mænishæð allt að 5,0m. Á B3 er gert ráð fyirr þjónustumiðstöð, allt að 300 m2 að stærð með mænishæð allt að 6,0m, og geymsluhús/gestahús allt að 100 m2 að stærð með mænishæð allt að 5,0m.

Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 15. febrúar nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 29. mars nk. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi