Ágúst 2021

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra

 

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er kynnt lýsing að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024.

Hlíðarendakot – Lýsing aðalskipulagsbreytingar

Lagt er til að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Breytingin felur í sér að landnotkun á ca 30,0 ha svæði á jörðinni Hlíðarendakot, verður breytt í annars vegar íbúðabyggð (ÍB) og hins vegar verslun og þjónustu (VÞ).

Ofangreind skipulagslýsing verður kynnt fyrir almenningi með opnu húsi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, mánudaginn 23. ágúst 2021 kl. 10:00 – 12:00. Einnig verður tillagan aðgengileg á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við skipulagslýsinguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 6. september 2021.

 

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.

Strönd 2 lóð – Deiliskipulagstillaga

Skipulagið gerir ráð fyrir íbúðarhúsi, gesta- eða aðstöðuhúsi og geymslu. Mænishæð íbúðar-, gesta- eða aðstöðuhúss verður 5,0m en 7,0m fyrir geymsluhús. Hámarksbyggingarmagn er 200 m2.

Ofangreinda deiliskipulagstillögu er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 23. ágúst nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 29. september nk. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.