Álagningaseðlar fasteignagjalda eru ekki lengur sendir út með bréfi heldur eru þeir einungis aðgengilegir í gegnum www.island.is.

!!Verndum umhverfið og minnkum pappírsnotkun!!

Hvernig nálgast ég Álagningarseðilinn minn? (lesist til enda)

  1. Ferð inná www.island.is
  2. Skráir þig inn á "mínar síður"
  3. Smellir á "Pósthólf - er bréf til þín?"
  4. Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda 2021" sem er að finna þar í listanum.

Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður sem pdf eða prenta hann út.

Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Rangárþings eystra.

Sími 4884200– netfang hvolsvollur@hvolsvollur.is