Kvenna­hlaupið var fyrst  haldið árið 1990 og var markmið hlaups­ins að fá fleiri konur út að hreyfa sig og að hvetja konur til þátt­töku í starfi íþrótta­hreyf­ing­ar­innar á Íslandi.

Nú 30 árum síðar en enn hlaupið á um 80 stöðum á landinu og nokkrum stöðum erlendis.

Í ár er hlaupið á tveimur stöðum í Rángárþingi eystra þann 15. júní:

         

          Frá Íþróttamiðstöðinni Hvolsvelli kl 11:00. Boðið er bæði upp á 3km og 6km hlaupaleiðir.

                     Forsala í Íþróttamiðstöðinni 14. júní frá 1600-18:00

 

          Frá Seljalandsfossi kl: 14:00. Boðið er bæði upp á 2km og 4km hlaupaleiðir.

                    Forsala í síma 8471657 / 4878912

 

Hægt er að kaupa boli á hlaupa­stöðunum og kosta þeir 2000 kr. fyrir 13 ára og eldri og 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri.

Þau sem vilja geta engu að síður gengið frá kaupum á bol fyrir hlaup inni á TIX.is